Skýjaþorpið
Nítjánda öldin skýlir mér fyrir hvunndeginum þessa dagana
Ég veit ekki hvort það er hinn tætingslegi málarekstur samtímans sem veldur því að ég loka núið úti við hvert tækifæri sem gefst og sekk mér ofan í að skoða hvað menn sögðu og gerðu á 19. öld, hér á Íslandi og víðar í Evrópu. Þessi aðferð er fín til að hvíla sig á argaþrasi og áreiti, sem stundum er svo nálægt manni að það tætir dálítið. Gott að eiga sér andlegt skjól í fortíðinni þegar svo leiðis er. Rétt þó að taka fram að þetta er engin öfugsnúin fortíðarþrá, enda hefði ég ekki fyrir nokkra muni viljað vera uppi á 19. öld.
Áramót 2012
Jæja þá er komið nýtt ár. Enn óskrifað blað. Óska öllum farsæls nýs árs og friðar.
Hálf gul sól
Ég er ein þeirra sem ólst upp við að engin væru jól án bóka, og dygði þá ekki bara að fá bók í jólagjöf heldur fengi maður bók í hendur sem maður gæti ekki lagt frá sér heldur læsi allan dag og þá næstu nótt, allt til enda. Stundum gerist þetta en þó ekki alltaf. Mín leið til að finna slíka bók á þessum jólum henti eiginlega fyrir hreina tilviljun. Ég er nefnilega svo lánsöm að eiga fullt af efni í hillunum sem mér hefur verið gefið eða ég keypt á undanförnum árum en ekki haft tíma til að lesa. Núna um jólin nýti ég mér þennan fjársjóð. Bókin sem ég gat ekki lagt frá mér núna heitir Hálf gul sól sem út kom 2007 og er eftir nígeríska rithöfundinn Chimamanda Ngozi Adichie (þýðandi er Ingunn Ásdísardóttir og Bjartur gaf út árið 2008). Bókin er sögð frá sjónahóli þriggja ólíkra persóna, snilldarlega skrifuð og sagan sem sögð er er fögur á köflum þar sem hinu mannlega og breyska eru gerð snilldarleg skil af miklu djúpsæi og skilningi á mannlegri náttúru. Og hún er skelfileg á köflum þar sem mikilli grimmd er lýst en líka þrautseigju, hugrekki, tryggð og ást. Sögusviðið er Biafra á sjöunda áratugnum, skömmu áður og á meðan á grimmu stríðinu á milli Nigeríu og Bíafra stóð. Sjá um bókina og höfund hennar: http://www.halfofayellowsun.com/
Jólakveðjan 2011
Kæru vinir nær og fjær:
© Unnur Karls
Dagbókarbrot frá Ísrael haust 1987 til vors 1988; rifjað upp í tilefni af viðurkenningu íslenskra stjórnvalda á sjálfstæði Palestínu innan landamæra frá því fyrir sex daga stríðið
Formleg athöfn var haldin í dag, 15. desember 2011 í Þjóðmenningarhúsinu í tilefni af viðurkenningu íslenskra stjórnvalda á sjálfstæði og fullveldi Palestínu innan landamæranna frá því fyrir sex daga stríðið árið 1967, sem var samþykkt á Alþingi 29. nóvember s.l.  Mér varð hugsað til baka, til þessara mögnuðu svæða, til Ísraels, og til Palestínu, þar sem dvaldist um sjö mánaða skeið á níunda áratugnum. Set hér nokkur dagbókarbrot frá þeirri dvöld til að draga upp hversu vænt mér þykir um íbúa þessa svæðis, burtséð frá pólitískum landamærum, á korti og í huga manna. Megi friður komast á þarna og allir gera sitt besta svo að svo megi verða, heimamenn sjálfir og heimurinn allur.
Ég kaupi flugmiða aðra leiðina til Ísrael þegar ég fór þangað í byrjun október 1987. Ástæðan er að ég veit ekkert hvað ég vil vera lengi, ætla bara að leika það af fingrum fram eftir því sem ég hef pening til. Ég er með nokkur heimilsföng Ísraela í farteskinu, sem höfðu verið á ferðalagi á Íslandi árið áður og ég kynnst þeim þá þegar ég vann hjá ferðafyrirtæki sem sérhæfði sig í hálendisferðum. Sumt af þessu fólki hafði orðið góðir vinir mínir. Ísraelar eru skemmtilegt fólk, hafa húmor, eru sterkir persónuleikar, sérvitrir og einþykkir á einhvern hátt sem minnir mjög á okkur Íslendinga. Gestrisni íbúa Ísrael er með eindæmum mikil, jafnt gyðinga sem araba. Ég hef ekki kynnst slíku annars staðar, hvorki fyrr né síðar. Fádæma gestrisni og hjálpsemi heimamanna verður til þess að ég heimför frestast og þessi fyrirhugaði mánuður sem ég ætlaði að vera í landinu er orðinn að þrem mánuðum áður en ég veit af. Það er alltaf einhver sem einhver vill að ég hitti áður en ég fer heim, alltaf einhver staður sem einhver vill að ég sjái og alltaf eitthvað sem einhver vill fyrir alla muni að ég upplifi. Eitt af því eru að sjálfsögðu jól í Betlehem. Nema hvað. Ekki hægt að vera í Ísrael og missa af því, segja vinir mínir. Það er svo sem ekki erfitt að sannfæra mig um það, enda ég biblísögubarn að hætti íslenska skólakerfisins og þjóðkirkjunnar, alin upp við söguna um Maríu og Jósef og fæðingu frelsarans í fjósi í Betlehem.
Þannig að þann 24 desember 1987 sit ég í rútu á leið til Betlehem, líkt og fjöldi annarra ferðamanna, sumir í pílagrímsferð, aðrir eins og ég; bara að túristast. Það er kalt og hráslagaleg rigning í Betlehem og allt gengur hægt fyrir sig þar sem röðin þokast í gegnum hliðið á á öryggisgirðingunni sem hafði verið sett upp umhverfis Fæðingarkirkjuna. Innan hennar safnast mannfjöldinn saman í æ stærri söfnuð framan við kirkjuna þar sem jólaguðsþjónustan er sýnd á stórum skjá fyrir þá sem ekki er rúm fyrir inni í kirkjunni, sem eru mjög margir. Ein kirkja getur ekki tekið við mörgum rútuförmum af ferðamönnum, sama hversu stórt hjarta guðs svo sem kann að vera. Þarna er gríðarlegt öryggiseftirlit hers og lögreglu. Og líklega eins gott því svona mannmergð eins og var stödd þarna framan við kirkjuna í Betlehem kjörin bráð fyrir sprengjutilræði eða sjálfsvígsárás.
Kristnir íbúar Betlehem, þ.e. kristnir arabar, halda hins vegar engin jól fögnuðar og friðar á þessum jólum, enda er Betlehem á hertekna svæðinu. Í mótmælaskyni við hernám Ísraela á svæðinu og fangelsanir og dráp á arabískum íbúum í Betlehem á undangengnum vikum eru engar skreytingar settar í glugga verslana og á götur og torg eins og venja er og árvissum jólaboðum bæjaryfirvalda og öllum hefðbundnum uppákomum í tilefni jólanna, utan trúarlegra, er aflýst.
Jerúsalem, hin helga borg svo margra trúarhópa, er í bland forn og ný. Flest hverfin í vesturhlutanum eru bara eins og borgir eru, malbikaðar umferðargötur og torg, verslanir, kaffihús og bankar. Hverfi heittrúaðra er þó öðruvísi, enda er þar lifað samkvæmt Gamla Testamentinu og útleggingum á því. Ég fer einu sinni inn í þetta hverfi til að skoða og dressa mig upp samkvæmt leiðbeiningum svo ég sleppi ósködduð frá þessu. Ég fékk lánað skósítt pils hjá ísraelskri vinkonu minn til að vera í og gætti þess að vera með klút vafinn um hálsinn upp að höku, er í langerma bol og gæti þess að ýta ermunum ekki svo mikið sem millimeter upp úlnliðinn, svo hvergi sjáist nú í hörund þar. Hef engan áhuga á að verða fyrir heittrúaðri árás. Þeir eru ekkert árennilegir karlarnir með svörtu hattana í svörtu kápunum, með skeggið, lokkana og God on their side. Þeim er ekkert vel við nútímann og sýna það með ýmsu móti, t.d. með því að láta í ljósi vanþóknum á því að Ísraelar keyra bíla á Sabbat, þ.e. hvíldardeginum, og safnast þá æstir saman við umferðargötur sem liggja hjá framhjáhverfi þeirra og kasta grjóti í bílaumferðina. Ungum Ísraelum finnst stundum gaman að espa þá upp. Ég sat eitt sinni í rútu við hliðina á 14 ára ísraelskum strák sem sagði mér að eitt af því sem tvítugur bróðir hans og vinir hans gerðu til að drepa tímann þegar þeir fá helgarfrí í hernum sé að spæna fram og aftur hjá hverfi heittrúaðra til að ögra þeim og egna þá af stað með grjótið. Reyndar eru margir Ísraelar lítt hrifnir af hinum heitttrúuðu og velja margir að búa í Tel-Aviv frekar en Jerúsalem, því lífið í Tel-Aviv er frjálslegra og með frekar vestrænu sniði en borgarbragurinn í Jerúsalem er þunglamalegur og á köflum þvingandi þar sem strangtrúaðir gyðingar hafa sterk ítök í borginni og ráða lögum og lofum á mörgum sviðum.
Nýi hluti Jerúsalem er eins og hver önnur stórborg að stærstum parti, með steyptum háhýsum og umferðardyn. Um gömlu borgina gegnir öðru máli. Þegar maður gengur í gegnum borgarhlið gömlu Jerúsalem þá skilur maður nútímann eftir utan við fornan múrinn sem umlykur borgina. Gamla Jerúsalem er heimur út af fyrir sig. Steinlagðar göturnar eru fullar af fólki; þarna eru ferðamenn að skoða kirkjur, heilagar slóðir og fornminjar, eða þá að prútta um varning á arabíska markaðnum þar sem búðirnar eru í röðum og selja allskonar varning, skartgripi, fatnað, teppi, úr, grænmeti, ávexti, te og kaffi, silfurmuni, og allra handa handverk. Öllu ægir saman, fornu og nýju og raddir ótal þjóða heimsins hljóma í bland við hringingar kirknaklukkna og bænaköll frá moskunum. Vegfarendur eru jafn mislitir og söluvarningurinn á markaðnum. Ferðamenn frá öllum heimshornum í bland við heimamenn; araba, gyðinga og armena. Að sama skapi er klæðaburður vegfarenda fjölbreytilegur, þ.e. vestrænn, þjóðlegur eða trúarlegur og svo ekki sé því gleymt – hernaðarlegur. Grænn búningur ísraelska hersins sker sig allstaðar úr í litríkri mannþrönginni. Það eru hermenn allstaðar, og ekki bara í gömlu borginni heldur í dalnum og uppi í hæðunum, enda er austur Jerúsalem hernumið svæði síðan í sex daga stríðinu og mikill fjöldi araba sem kemur auk þess frá hinum hernumdu svæðunum til vinnu í gömlu Jerúsalem, aðallega frá Vesturbakkanum en einnig frá Gasa.
Krossar og hálfmánar, kirkjuturnar og kúptar hvelfingar bera við loft í gömlu borginni, í bland við sjónvarpsloftnetin og þvottinn á snúrum á þökum arabísku húsanna. Ég kann ekki að greina sundur alla liti eða tákn kristnu kirkjudeildanna og er því aldrei með það á hreinu hvort hinir alvarlegu og ábúðarfullu trúarinnar þjónar sem ég mæti á steinlögðum götum gömlu Jerúsalem tilheyra grísku rétttrúnaðarkirkjunni, hinni rómversk kaþólsku, koptum, armensku kirkjunni, lúterskri kirkju eða Guð má vita hvaða kirkju, því þarna eru kirkjur hvert sem litið er, og ef það er ekki kirkja þá er það synagóða, moska, musteri eða musterisleifar, líkt og grátmúrinn, þar sem alla daga er tuldrandi og ruggandi fjöldi gyðinga að biðjast fyrir og stinga miðum með bænum sínum og óskum til guðs inn í glufur á múrnum. Karlar biðja öðru megin við girðinguna og konur hinum megin. Hin strangasta nálgun við guð lýtur aðskilnaði kynjanna í gyðingdómnum. Kynin eru þess vegna girt í sundur við grátmúrinn. Meðan maður talar við guð er hitt kynið haft í annarri girðingu, í öðrum dilk, í þessari rétt trúarinnar. Þannig er reyndar gamla Jerúsalem öll, eins og fjárrétt. Fólk er dregið í dilka eftir trúarbrögðum. Hún skiptist í kristna hverfið, gyðingahverfið, armenska hverfið og arabíska hverfið. Hvert hverfi fyrir sig á sína menningarlegu og trúarlegu hlið og arfleifð og byggingarnar endurspegla það sem og hverjir búa þar og hverjir fá að setjast þar að. Múslími fær ekki að búa í kristna hverfinu, arabi ekki í gyðingahverfinu og gyðingar ekki í arabíska hverfinu. Þetta síðastnefnda var þó ekki öruggt en um leið ekki gerlegt án ofbeldis, líkt og upptaka Ísraela á eignum araba með hervaldi hafði verið dæmi um. Torgið fyrir framan grátmúrinn hafði t.d. verið arabísk byggð, sem var jöfnuð við jörðu og íbúarnir reknir á brott, eftir sókn ísraelska hersins inn á svæðið í sex daga stríðinu, 1967, en þá hertóku Ísraelar Austur-Jerúsalem; áfangi sem hafði bæði mikla hernaðarlega og pólitíska þýðingu en þó ekki síður trúarlega, enda er múrinn helgur staður í huga gyðinga sem leifar af muserinu helga.
Hinum megin við grátmúrinn er hins vegar svæði þar sem enginn gyðingur sem er annt um að halda lífi stígur niður fæti nema í herklæðum með vélbyssu um öxl og þó ekki einn á ferð. Þetta er musterishæðin, þar sem einu sinni var musteri Salómons en er nú arabískt svæði og helgidómar múlíma þarna reistir fyrir árhundruðum. Þar stendur Klettakirkjan og Al Agsa moskan. Þar er brunnur og í honum þvo múslímar fætur sína og ganga skólausir fram fyrir guð, karlar inn í sína mosku, konur í sína,  því kynin biðja ekki saman hjá aröbum frekar en gyðingar gera.
En ég sem ferðamaður má skoða, líta dýrðina inni í fallegri moskunni, bara muna að fara úr skónum, vera ekki á hábænatíma, fara hljóðlega og fara hvergi öfuga leið að neinum helgidómi og gæta þess að ég má ekki stíga niður fæti hvar sem er. Þannig er reyndar gamla Jerúsalem öll. Það er eins gott að gæta þess að fara rétt að öllu í þessu völundarhúsi trúarbragðanna. Maður getur aldrei alveg treyst því að verða ekki fyrir ádrepum frá einhverjum sem telur sig hafa umboð til þess hér á jörðu í nafni guðs að hníta í annað fólk. Ég verð stundum vitni af slíkum ávítum af hálfu trúarlegra preláta, t.d. eitt skipti í kirkju hinnar heilögu grafar þegar prestur hreytir einhverjum ónotum í gamla konu sem situr snökktandi í grafarhvelfingunni. Hún hrökklast á fætur og færir sig til í kirkjunni með sinn vasaklút. Ég veit svo sem ekki af hverju gamla konan er að gráta, hvort það er yfir örlögum Jesú eða einhverju öðru en ég skil ekki af af hverju hún má ekki bara sitja þarna við gröf krists og snökkta. Ég velti fyrir mér til hvers eigi eiginlega að nota þessa risakirkju með allar þessar kapellur ef gamlar konur mega ekki gráta inni í þeim. En hvað skil ég svo sem, sem aldrei hef haft önnur afskipti af kirkju í mínu landi en þurfa að fara þar inn vegna ferminga eða jarðarfara. Sjálf fæ ég líka ávítur í hinni helgu borg, nánar tiltekið þegar ég geng niður á torgið framan við grátmúrinn í stuttermabol í 40 stiga hita. Karlmaður æpir á mig að hylja hörund mitt ef ég ætla að vera á þessu svæði. Ég gref skyrtu upp úr bakpokanum hið snarasta og klæði mig í hana. Huldi handleggina. Nema hvað. Á þessum slóðum er maður ekki með múður, enda er ég gestur hér og fæ að ganga um þessar götur frjáls og jafnvel frjálsari en íbúar Jerúsalem.
Ég flakka milli allra hverfanna í gömlu Jerúsalem, fram og til baka, þvers og kruss, og á milli gömlu borgarinnar og hinnar nýju, eins og mér sýnist, ólíkt því sem vinir mínir geta gert, hvort sem þeir eru arabar eða gyðingar. Gyðingar í vesturborginni fara margir hverjir ekki inn í gömlu Jerúsalem af ótta við banatilræði. O. vinkona mín er ein af þeim. Hún hefur aldrei stigið þar fæti, segist vera hrædd við að vera myrt af því hún er gyðingur, stungin með hnífi finnst henni líklegasta leiðin. Arabískir vinir mínir sem búa í gömlu Jerúsalem eða í bæjunum austan við borgina fara helst ekki út fyrir gömlu borgarmúrana inn í nýju borgina til að forðast að vera stoppaðir hvað eftir annað af hermönnum sem skipa þeim að gera grein fyrir ferðum sínum og sýna skilríki. Þegar komið er til baka að hliðum gömlu borgarinnar þurfa þeir líka að fara í gegnum nálarauga hersins til að fá að fara inn í gömlu borgina, sýna skilríki og gera grein fyrir á hvaða ferð þeir séu, hvar þeir hafi verið, til hvers, með hverjum. Þetta tekur tekur oft á taugarnar hjá vinum mínum sé ég í þau skipti sem ég er með í för, enda bæði þeytandi og óttablandið. Arabi er alltaf smeykur um að vera tekinn af lögreglu eða hernum, settur í yfirheyrslu og varpað í fangelsi um skemmri eða lengri tíma. Það ríkir ekki jafnvægi hér. Það ríkir hernaðarástand í Ísrael, hefur gert það svo lengi. Óvinurinn er allstaðar, raunverulegur og ímyndaður, og þótt maður sé t.d. bara rétt rúmlega tvítugur arabi sem á ekki annað erindi út fyrir múra gömlu Jerúsalem en fá sér bjór með vinum sínum þá getur það kostað handtöku, yfirheyrslur og jafnvel fangelsisvist í tólf tíma eða lengur. Þetta er ekki auðvelt heldur flókið, stressandi og niðurlægjandi. Sjálf er ég ekki spurð um skilríki í Jerúsalem eða leitað í mínu dóti, enda er ég Vesturlandabúinn ekki partur af „the Palestinian problem,“ eins og það kallast.
Skýringin á eftirliti hers og lögreglu með arabískum borgurum herteknu svæðanna er ótti Ísraela við hryðjuverk enda eru sprengjuárásir og morð á óbreyttum borgurum tíð í Ísrael. Það líður varla sá mánuður og oft ekki sú vika öðruvísi en gyðingur sé myrtur af araba og saga landsins er full af sögum um slíkt, ár og áratugi aftur í tímann: Hnífstunga, byssuskot, sprengjutilræði, sjálfsmorðsárásir. Það er misjafnt hver aðferðin er en tilgangurinn er sá sami: Að taka mannslíf og hefna fyrir mannslíf, í þessari endalausu og að því virðist óslítanlegu keðju blóðhefndastríðs milli araba og gyðinga, í baráttu þeirra fyrrnefndu fyrir stofnun sjálfstæðrar Palestínu og þeirra síðarnefndu fyrir að leyfa því ekki að gerast.
Intifada hófst haustið 1987, stuttu eftir að ég kom til Ísrael. Orðið merkir á arabísku að hrista af sér en í vestrænni meðhöndlun er orðið jafnan þýtt sem uppreisn, andspyrna eða bylting. Intifada snýst um baráttu Palestínuaraba gegn yfirráðum Ísraela á hernumdu svæðunum, um veru hersins þar og landtöku gyðinga í órétti við alþjóðalög og samninga, enda svæðið utan landamæra Ísrael. Vesturbakkinn tilheyrði Jórdaníu sem og austur-Jerúsalem og Gasa heyrði undir Egyptaland þegar Ísraelar lögðu undir sig þessi svæði í leiftursókninni í sex daga stríðinu 1967. Árás og hertaka svæðis sem í augum Ísraela snerist um varnaraðgerð gagnvart fjandsamlegum nágrannaríkjum, en í augum araba um ólöglega landvinninga og brot á mannréttindum Palestínumanna.
Verkföll eru ein þeirra leiða sem beitt er veturinn 1987 til 1988 í uppreisninni gegn hernáminu á Vesturbakkanum og Gasa, uppreisn sem í hugum arabískra íbúa þessara svæða snýst um frelsi frá kúgun og undirmálsstöðu, um mannréttindi, sjálfsákvörðunarrétt og eigið þjóðríki Palestínumönnum til handa. Verkföllunum er ætlað að sýna Ísraelum samtakamátt Palestínumanna og skaða ísraelskt efnahagslíf, enda vinnuframlag araba í Ísrael mikið og ekki síður þáttur þeirra í matvælaframleiðslu og þjónustu við þær milljónir ferðamanna sem heimsækja landið árlega. Gallinn er auðvitað sá að verkföllin koma illa við pyngju arabískra fjölskyldna og því meir sem verkföllin hafa orðið tíðari og fleiri dagar í senn. Enginn arabi þorir hins vegar annað en taka þátt, sama hversu sverfur fjárhag heimilis þeirra. Verkfallsbrjótum er refsað. Hús þeirra brennd eða eitthvað annað og verra, er mér tjáð yfir bolla af arabísku kaffi einn drungalegan verkfallsdag í austur Jerúsalem.
Þá daga sem verkföllin standa yfir er gamla Jerúsalem daufleg og tóm. Fáir eru á ferð en hermenn á sínum venjulegu eftirlitsstöðvum. Járnhlerarnir á sölubásunum á arabíska basarnum eru dregnir niður og líkt og horfa þunglyndislega á tómar göturnar. Einn slíkan dag í janúar er ég á ferð í gömlu borginni. Staldra við hjá gamla manninum sem selur arabíska dagblaðið. Hann býður það til sölu núna úti á götunni framan við búðina sína, því ekkert má vera opið. Það væri verkfallsbrot. Ég kaupi blaðið og rölti niður göturnar og niður á torgið fyrir framan grátmúrinn. Trúaðari gyðingar sinna sínu þar við múrinn líkt og alla aðra daga, enda hvorki í mótmælaverkfalli né í fríi frá tilbeiðslu sinni á Guð. Ég mæti nokkrum hermönnum þarna á torginu rétt innan við hliðið á múrnum sunnanverðum. Ungur hermaður stöðvar mig, spyr mig hvert för minni sé heitið og varar mig við að þetta sé hættusvæði. Þarna hafi fyrir réttri klukkustund maður verið stunginn og ristur á kvið og legið dauður með iðrin úti. Hann spyr í framhaldinu hvað ég ætli að gera þá um kvöldið og hvort ég vilji koma með honum í bíó. En nei, ég vil það ekki, ég er að fara annað og verð upptekin segi ég, og held áfram út í gegnum hliðið, meðfram múrnum og austurfyrir, uppfyrir Getsemanegarðinn og þar á lítið kaffihús. Þar á ég arabíska kunningja, síðan einhvern daginn að ég var þarna á ferð að skoða slóðir Jésú, Getsemane garðinn og kirkjurnar og minnisvarðana þarna og uppi á Olíufjallinu, eins og það heitir á íslensku í biblíunni og er frægt fyrir að þar á dáinn og upprisinn maður að hafa stigið upp til himna. Allt er það svo sem gott og blessað, ég er of ung til að sökkva mér í vísindahyggjulegar efasemdir um þau efni. Tek þessu bara sem almennum upplýsingum frá biblíusögulærdómi í barnaskóla og geng því ósnortin en forvitin um þetta sögufræga fjall. Uppi á fjallinu og hlíðinni er arabísk byggð. Kunningjar mínir á kaffihúsinu sem þar er, sem er í eigu föður og sonar hans, sitja að spili þegar mig ber að garði. Þeir eru ekki að vinna, það er verkfall segja þeir. Ég spyr hvort það sé ekki slæmt að geta ekki unnið, svona dag eftir dag. Yngri maðurinn lítur á mig með smá umhyggjuglampa í augunum og segir; „You westerners, you live to work. We arabs, we work to live.“ Með öðrum orðum; lífið snýst ekki bara um vinnu. En þeir viðurkenna þó að staðan sé slæm og eru ekki bjartsýnir á árangur eða sigur í baráttu Palestínumanna gegn hernáminu. Frá kaffihúsinu fer ég í heimboð í hús þarna ekki langt frá. Þar búa tveir bræður, í foreldrahúsum, sem ég kalla bara H og K hér í þessum texta.
Móðirin tekur á móti mér, vísar mér til stofu til þeirra bræðra og fer að sýsla við að útbúa te, en te hjá aröbum er ljúffengt get ég sagt ykkur. H., eldri bróðirinn er að pakka niður því hann er á förum til Bandaríkjanna, búinn að fá vegabréfsáritun sem hann sýnir mér glaður í bragði. Hann hefur tilefni til að vera glaður, nýslopinn út eftir margra mánaða fangelsisvist, enn veikburða eftir harðræði og pyntingar í fangelsinu. Hann segist hafa sætt svo slæmri meðferð að hann hafi verið á lista hjá Rauða krossinum yfir þá sem væri stefnt í lífshættu vegna illrar meðferðar í ísraelskum fangelsum. Kannski hef ég horft eitthvað efins á hann að þessu sögðu því hann fer ofan í skúffu og dregur þar upp skjal á ensku frá Rauðakrossinum og sýnir mér nafn sitt þar þessu til staðfestingar.
Ég spurði hann hvers vegna hann hefði verið settur í fangelsi. Hann segist hafa staðið að útgáfu bókar sem segi sögu stríðsins í Líbanon frá sjónarhóli Palestínumanna. Slíkt leyfi Ísraelar ekki enda búi Palestínumenn ekki við málfrelsi, bætir hann við. Mamman kemur inn með tebolla á bakka og fer svo og sest með pabbanum og heldur áfram að horfa á amerískar teiknimyndir í sjónvarpinu, eins og þau höfðu verið að gera þegar mig bar að garði. Að nokkurri stundu liðinni settjumst við K út í garð, sól er að síga til viðar í vestri handan við Jerúsalem. Fyrir neðan okkur liggur Getsemanegarðurinn, og gamla borgin snýr að okkur austurmúrnum með gullna hliðinu vandlega lokuðu síðan múslímar hlóðu upp í það fyrir margt löngu, að því að sagan segir til þess að koma í veg fyrir að messías fari þar um eins og spádómur gyðinga boðar. K vefur sér jónu á meðan við tölum um daginn og veginn, um lífið og ástina, frelsi og fjötra. Hann hafði unnið fyrir sér sem gígólo, en var hættur, og vinnur nú við að keyra út arabískt dagblað sem gefið er út á Vesturbakkanum. Nú er hins vegar ekkert að gera í útkeyrslu blaðsins því Ísraelar höfðu bannað útgáfu þess um ótilgreindan tíma vegna Intifada. Hann býður mér smók en ég non smókerinn afþakka enda held ég að víman sem fyllir huga minn þar sem ég sit og horfi á sólina setjast handan við Jerúsalem sé síst minni en hassvíman sem hann er í.  Það verður mjög kalt þegar sólin sest, enda janúar. Ég kveð K og held heim, nánar tiltekið til O. vinkonu minnar sem býr í nýja hluta Jerúsalem og á arabískan kærasta sem hún hefur falið fyrir fjölskyldu sinni síðan hún fór að búa með honum fyrir tveimur árum því fjölskyldan mundi taka kast og afneita henni ef hún vissi af sambandinu, að hennar sögn. Hún játar að það sé erfitt að halda svona leyndu fyrir fjölskyldu sinni að hún sé í sambúð og ástfangin en segist um leið skilja fjölskylduna vel. Arabar eru þeir sem við háðum stríð við, sem vildu drepa okkur öll þegar Ísrael var stofnað og þannig sér fjölskyldan mín þá, sem óvininn, segir hún, og því verður ekki breytt í bili, bætir hún við. Því verður erfitt að breyta í huga þeirra gyðinga sem börðust upp á líf og dauða við araba, um og eftir að Ísrael var stofnað og síðan í stríðunum sem háð hafa verið síðan þá, segir hún.
Kærasti O. er fæddur innan grænu línunnar, þ.e. innan landamæra Ísraels, en það mun ekki duga til að hann hljóti náð fyrir augum frænda og bræðra O. og geti losnað við óvinarstimpilinn. Ekki heldur þótt hann sé hið mesta ljúfmenni og eigi ekki ofstopafyllri eða hættulegri draum en þann að ljúka viðskiptafræðináminu og fá vinnu við að reikna út tölur. Þau hjónaleysin stefna því að því að yfirgefa Ísrael og byrja nýtt líf í landi þar sem gyðingur og arabi geta búið saman án árekstra við öll ríkjandi gildi og laus við að það bitni líka á börnum þeirra, en líf barna af blönduðum samböndum araba og gyðinga er ekki auðvelt í Ísrael segir O.
Svo að það fari ekki á milli mála þá kynnist ég því líka að gyðingar áttu araba að góðum vinum og halda þeirri vináttu þrátt fyrir Intifada og þá spennu sem uppreisnin skapar í í samskiptum arababa og gyðinga almennt. Fjöldi fólks í Ísrael styður kröfur Palestínumanna um afnám hernámsins og sjálfstæða Palestínu, og sýnir það á opinberum vettvangi með því að efna til mótmæla gegn stefnu ísraelskra stjórnvalda og til stuðnings málstað Palestínumanna, undir kjörorðinu „land fyrir frið.“  Margir ungir Ísraelar neita að fara í herinn til að þurfa ekki að taka þátt í að berja niður uppreisnina á herteknu svæðunum og því sívaxandi ofbeldi og mannfalli sem þar viðgekkst. Fjöldi Ísraela sætir fangelsisvist fyrir að neita að gegna herskyldu af pólitískum hugsjónaástæðum og aðrir fara huldu höfði í felum fyrir hernum. Ég hitti t.d. einn í Galileu þegar ég dvel þar undir vorið 1988. Hann var búinn að fara huldu höfði í þrjú ár til að komast hjá herþjónustu, oft legið úti og lifað á berjum, ávöxtum og öðru sem náttúran leggur til til að komast hjá því að gera vart við sig í mannabyggð, til að komast hjá handtöku.
Herinn á ísraelska karlmenn í vissum skilningi. Þeir gegna herþjónustu á milli 18 til 21 árs, þ.e. í þrjú ár, og konur í 2 ár, síðan eru menn kallaðir í herinn a.m.k. mánuð á ári, og oftar ef stríð eða átök brjótast út. Á fyrstu mánuðum Intifada eru menn endurtekið kallaðir út umfram venjulega rútínuherskyldu, í 2 vikur, 3 vikur eða meira. Átján ára sonur vinkonu minnar, píanókennara í Tel-Aviv, er á þessum tíma að byrja sína herskyldu. Kvöld eitt tjáir hún mér áhyggjufull að það eigi að senda hann inn á Gaza. Hún segir ekki meir. En ég skil hvað hún meinar. Íbúar Gasa hata ísraelska herinn eins og pestina. Gasa er tímasprengja. Þessi landræma er búr þar sem fólki er haldið föstu og ófrjálsu innan línu dreginnar á landakorti. Ég skildi því vel að hún skyldi nokkrum dögum síðar sitja við píanóið sitt og hugsa upphátt um hvernig hún gæti lagt sitt af mörkum í þágu friðar í Ísrael um leið og hún segist finna til algers vanmáttar gagnvart stærð erfiðleikanna. Eldri sonur hennar hins vegar vill ekki fara í herinn og það kostar eitt sinn harða rimmu við kvöldverðarborð fjölskyldunnar. Y., fjölskyldufaðirinn er ósammála, enda markaður af því að hafa barist í þeim styrjöldum sem Ísraelar háðu við aðliggjandi arabaríki á þeim tíma þegar leiðtogar þessara ríkja gáfu opinberlega út þær yfirlýsingar að æðsta sameiginlega markmið allra araba væri að ganga á milli bols og höfuðs á Ísraelsríki og kasta Ísraelum í hafið, eins og það var orðað. Y. hafði barist í sex daga stríðinu og Yom Kippur stríðinu árið 1973 og fórnað tilskildum hluta ævinnar til hersins þar fyrir utan, eins og allir ísraelskir karlmenn þurfa að gera (nema þeir strangtrúuðu en það er önnur saga). Herinn er líftrygging ísraelsku þjóðarinnar segir Y. í þessari samræðu við son sinn. Ef hans nýtur ekki við og ef hann er ekki sterkur og vel skipulagður verðum við öll drepin með köldu blóði. Er það það sem þú vilt, að fjölskyldur okkar verði drepnar, spyr hann. Þetta snýst um þig líka, eiga bara aðrir að verja þig og þú að sitja hjá, komandi þér undan sömu skyldu. Af hverju eiga aðrir að fórna sér til að verja Ísrael en þú ekki?  Sonur hans, tuttugu og fimm ára, á ekki annað svar við svo áleitnum spurningum en kröfu og von um að harðlínumenn í báðum fylkingum, meðal araba og gyðinga, sjái að að sér, hætti að reyna að koma á friði með stríði, finni málamiðlun og lausn í þágu friðar sem haldi til frambúðar.
Þetta er svo sannarlega ekki létt umræða yfir kvöldmatnum og það er enginn sigurvegari. Enginn hefur betur, ekki frekar en á við um ástandið utan veggja þessa menningarlega heimilis ísraelsks menntafólks. Á hernumdu svæðunum er ofbeldisfull pattstaða og listinn yfir fallna Palestínumenn lengist dag frá degi. Margir hinna föllnu eru á táningsaldri, bara börn. Vonir ísraelska hersins um að fljótt tæki af að berja niður uppreisn Palestínumanna hafa dvínað eftir því sem mánuðirnir hafa liðið og grjótkasti palestínskra ungmenna að ísraelskum hermönnum er æ oftar svarað með alvöru byssukúlum í stað táragass eða gúmmíkúla. Taugarnar eru þandar. Það rennur blóð eftir slóð.
Þannig safnast þær að mér eftir því sem mér dvelst í þessu margbrotna en svo ofurflókna samfélagi, sögurnar og dæmin, brotabrot úr daglegu lífi fólks sem þarf að glíma við flóknar aðstæður og erfiðar siðferðilegar spurningar upp á nánast hvern einasta dag; dæmi og sögur um líf og baráttu tveggja magnaðra þjóða í kynngimögnuðu landi svo fullu af örlagaríkri sögu og sögufrægum byggingum, fornminjum, náttúrfegurð, nútímanum og fortíðinni, sigrum og ósigrum. Ég er ekki haldin slíku oflæti að halda að ég, 23 ára „stelpukettlingur“ frá Íslandi hafði nokkra möguleika til að skilja aðstöðu gyðinga og araba í Ísrael og á hernumdu svæðunum né heldur er ég haldin slíkum hroka að telja að ég hafi nokkurn rétt til að fella dóma. Eina sem ég get þó skilið fullum skilningi er að enginn vill lifa við órétt og undirmálsstöðu eins og Palestínumenn á hernumdu svæðunum búa við, og enginn á það þurfa að lifa svið slíkt, og ég skil líka að enginn vill vera drepinn, eins og gyðingar lifa í ótta við, og ef maður á alltaf von á hættunni á því af hálfu meðborgara sinna að þeir vilji mann feigan þá er ekki á góðu von, erfitt að byggja upp traust og ógerlegt að koma á friði.
En Ísrael er svo margt annað og meira en pólitísk vandamál og blóðug átök enda þótt sú hlið á landinu sé aðallega í heimsfréttunum. Það er svo margt hægt að gera í Ísrael og ég nýti mér það þessa sjö mánuði sem ég er þar, frá haustinu 1987 fram til vors 1988. Á milli þess sem ég er á mannkynssögu og trúarbragðasöguflippi að skoða guðshús og fornminjar af ýmsum gerðum, þá skoða ég ýmsa hönnun sem er þarna á háu stigi, demantasýningar, list og menningarviðburði, fer á söfn, tónleika og í bíó, dóla á ströndinni í Tel-Aviv, rölti um útimarkaði og borgarstræti, skoða minnisvarða og lystigarða, hangi á kaffihúsum og börum eða ligg bara inni með bók á meðan hinar endalausu úrhellisrigningar og þrumuveður ísraelsks vetrar teppa mig innandyra. Það er ekki verandi úti þegar himnarnir hella úr fötunum svo beljandi lækir renna eftir borgargötunum og flóð myndast í giljum eyðimarkanna. Rigningarflóðið er þó dýrmætt, það hefur gríðarlega þýðingu fyrir Ísraela sem glíma stöðugt við vatnskort. Rigningarvatni er því safnað í tanka á regntímanum. Vatn, eða öllu heldur vöntun á því, er mikið mál í Ísrael og partur af pólitískum átökum en ég fer ekki nánar út í það hér.
Ísrael er ekki stórt land, maður keyrir endanna á milli á um átta tímum minnir mig, þ.e. frá Eilat við Rauðhafið og norður í hæðótt héruðin sunnan landamæra Líbanon. Um tvo tíma tekur að keyra þvert yfir landið þar sem það er breiðast um miðjuna, þ.e. frá Dauðahafinu að Miðjarðarhafinu. Ef maður stendur upp á fjalli í Judeu eyðimörkinni sér maður til endimarka landsins beggja megin. Mestan tímann sem ég er í Ísrael dvelst ég í Tel-Aviv, Jerúsalem og Eilat, hafnarborginni við Akabaflóa, eða Rauða hafið eftir hvort heldur sem maður vill nefna í þessu sambandi. En ég heimsæki líka Nasaret og dvel í samyrkjuþorpi í Galileu. Það er komið vor þegar ég fer til Galileu og ég nýt þess að komast í tæri við grænan gróður eftir þyrrkingslegan eyðimerkurgróðurinn um miðbik landsins og eyðimörkina í suðri. Ég fæ lítið hús út af fyrir mig til að dvelja í, með útsýni yfir Galileu og Galileuvatn. Þarna eyði ég nokkrum vordögum uppnumin af fegurð þeirra litríku þúsunda blóma sem spretta upp í Ísrael að vorinu eftir vetrarrigningarnar, og ekki aðeins í grænum hæðum og dölum Galileu. Jafnvel eyðimörkin verður blómum prýdd. Í örfáar vikur á vorin blómstrar allt og grænkar á stórum svæðum í Ísrael. Landið fer úr eyðimerkurklæðunum og í blómakjól. En þessi gróðursæld varir aðeins í stuttan tíma. Hitinn og þurrkurinn eykst og allt mun verða þurrt og skrælnað þegar sumarið gengur í garð. Blómin að vori eru einmitt atriði númer tvö á eftir jólum í Betlehem sem ísraelskir vinir mínir lögðu að mér að bíða eftir að sjá áður en ég færi heim.  Og það er svo sannarlega þess virði að hafa beðið. Blómahafið er dýrðarsjón.
Af því að ég  nýt þeirra forréttinda að kynnast Ísreal innanfrá, þ.e. þekki marga heimamenn þá get ég skoðað landið víðar og á leyndari stöðum og óaðgengilegri en ég hefði átt kost á að gera sem venjulegur ferðamaður. Ég á vini sem eru leiðsögumenn náttúruvísindamanna og framhaldsskólahópa og með þeim fékk ég að fara um fjöll og dali í Negev eyðimörkinni, um Golanhæðirnar og byggðir Drúsa í norðrinu og fjallendi Júdeu milli Jerúsalem og Jerikó. Ég gleymi því líka ekki hvað ég varð hissa þegar ég uppgötvaði að eyðimörk getur verið fjöll og dalir, svo vön var ég þeirri staðalmynd að eyðimörk sé bara slétt og í mesta lagi öldótt. Norðurhluti Negev spillti ekki þeirri þröngu heimsmynd minni en suður Negev splundraði henni algerlega. Þar er ótrúlega stórbrotið og fagurt landslag og ævintýralegt – sé maður svona óhultur eins og ég var alltaf með vatnsflösku og í fylgd kunnugra, – og vopnaðra. Enginn fer í leiðangra með fólk í ísraelskri náttúru nema vopnaður vörður fylgi með. Fyrir mér var fjallendi Suður-Negev ævintýraheimur. Brúnar og jarðaberjalitar sandssteinsmyndanirnar þarna eru svo stórbrotnar að það er engu líka en maður sé puti að labba í súkkulaði- og jarðaberjaísgerð í risalandi. Og ekki spillti stemmningunni að þegar maður kom ferðaþreyttur og rykugur til baka úr eyðimörkinni aftur heim til Eilat þá var hægt að skella sér í sjóinn, sjálft Rauðahafið og busla þar hjá kóralrifjum og marglitri fiskahjörð. Lífið var ljúft. Þarna átti ég mitt sumar á heimsenda – um miðjan vetur. Ég fer aftur suður til Eilat í apríl til þess að upplifa þegar stórir hópar farfugla fara þarna um á leið sinni frá Afríku til Evrópu, austur um mið-Asíu og sumir allt norður til Síberíu. Sit einn dag á fjallinu ofan við Eilat og dáist að stórum hópi gamma leika sér í uppstreyminu. Tilkomumikil sjón að sjá þá bera við fagurbláan himininn svífandi á stóru vænghafinu. Ég fer líka að saltvötnunum á landamærum Ísrael og Jórdaníu sem voru þéttsetin fugli, flamingóum, og hundruðum annarra tegunda. Hitti jafnvel á plani bensínstöðvar í Eilat nokkra af okkar vorboðum, nánar tiltekið nokkrar Maríuerlur. Ég bið að heilsa heim ef þær yrðu á undan mér. Ég er komin með heimþrá. Það er mál til komið að halda heim.
Tuttugasta og sjöunda apríl stend ég í röðinni sem mjakast í gegnum öryggiseftirlitið á Ben-Gúrion flugvelli. Allt gengur samkvæmt rútínu, það er leitað í farangri allra, rútínubundin sprengjuleit. Öryggisvörður er búinn að taka mest af dótinu mínu og leita í vandlega í öllu, opna tannkremstúpuna og kreista til að sannfæra sig um að hún innihaldi bara tannkrem, hann er kominn að því að athuga hvort það sé sprengja ofan í hárnæringarflöskunni þegar tilkynning gellur í hátalakerfinu. Sprengjuviðvörun! Allir sópast  af stað, nema ég, átta mig ekki á af hverju ísraelska staffið rýkur svona burt, og vil ekki skilja myndavélina og linsurnar eftir þarna á borðinu. Það kemur ekki að sök. Þetta var false alarm. Öryggisvörðurinn heldur áfram að gramsa í dótinu mínu og spyrja spurninga. Ég er farin að halda að ég ætli að aldrei að komast í gegnum öryggiseftirlitið og spurningaflóðið. Ég held það sé af því það eru tveir stimlar til Egyptalands í vegabréfinu mínu eftir ferðalögin þangað í vetur og svo ætlar allt vitlaust að verða þegar bókin um Abu Nidal, the Master Terrorist  er dregin upp úr töskunni. Ég er með ýmsar aðrar bækur um málefni Ísrael og Palestínu en þessi veldur taugatitringi og öryggisvörðurinn hleypur með bókina hingað og þangað til að ráðfæra sig við kollega sína. Ástæðan líklega sú að Abu Nidal, fyrrverandi PLO maður, er stofnandi og höfuðpaur hryðjuverkasamtakanna Fatha, alræmdur hryðjuverkaforingi með fjölda mannslífa á samviskunni og eftirlýstur sem einn hættulegasti óvinur Ísraels.  Þessi taugastrekkingur út af bókinni snýst auðvitað ekki um bókina, enda ekki eins og ég sé hér með áróður sjálfs terroristans í kilju heldur byggir þessi bók ísraelsks blaðamanns á leyniþjónustuskjölum. Þetta upphlaup út af einni bók sýnir bara hversu mikil spennan er orðin í landinu eftir margra mánaða uppreisn á hernumdu svæðunum. Ég er yfirheyrð svo lengi að ég er farin að halda að það eigi ekki að sleppa mér í flugið. Er orðin smeyk um að vélin fari í loftið án mín, fyllist smá angist, en er fullvissuð um að flugvélin muni bíða eftir mér, þótt hún eigi að vera farin í loftið. Hvílíkur léttir þegar ég loks hleyp landganginn og um borð, langsíðust allra. Ég finn í senn fyrir söknuði og feginleika þegar vélin tekur á loft. Ástandið í landinu er orðið sárara og skelfilegra en orð fá lýst. Mér finnst það vera forréttindi að geta sest upp í flugvél og flogið heim til lands sem á við svo miklu einfaldari vandamál að stríða en íbúar Ísrael og herteknu svæðanna búa við.
Nokkrar þeirra mynda sem ég tók á þessum tíma er að finna á slóðinni:
http://unnurkarls.wordpress.com/category/ferdalog-travels/israel-israel/
Aðventan í ljósi og myrkri og bókaauðlindin
Aðventan er tími eftirvæntingar og eftirsjár. Eftirvæntingar því að framundan eru jól og áramót og síðan nýtt ár með ótal nýjum tækifærum og draumum að láta rætast. Eftirsjá af því að að baki er enn eitt árið í ævinni með öllu sem því fylgdi, óskum um að hafa gert betur og gleði eftir mögnuðum stundum sem maður hefði viljað geta notið dálítið lengur. Tíminn líður svo hratt. Snjórinn í borginni gefur henni léttari og áhyggjuminni svip en grátt malbikið með sinn drungalega gráa blæ í skammdeginu þegar jörð er auð. Jólaljósin í miðborginni virka hlýleg og borgin verður pínulítið ævintýraleg. Bækurnar koma út hver af annarri og um alla borg eru uppskeruhátíðir höfunda og útgefenda. Ég fór á eina slíka í kvöld hjá Sögufélagi þar sem kynntar voru nokkrar bækur sem Sögufélag annars vegar og Hið íslenska bókmenntafélag hins vegar gefa út núna fyrir jólin. Piparkökur og laufabrauð í boði í góðum félagsskap og fróðleikur nýrra heima sem fylgja nýjum bókum. Jólabókaflóðið er dýrmæt menningarauðlind okkar Íslendinga og því fylgir þetta sérstaka andrúmsloft. Kannski er til svona stemmning annars staðar í heiminum í kringum útkomu bóka, og eflaust, en samt held ég að þetta sé aldrei eins í neinu landi og okkar upplifun hér því einstök í vissum skilningi. Það fylgir líka jólabókunum meira en það að nýjar bækur komi út, því fólk fær í hendur nýjar hliðar á samfélaginu og mannlífinu, í skáldskap og fræðum, og sambandið við tungumálið er endurnýjað í öllum lestrinum. Bækur færa líka fólk nær hvert öðru, það eru tilefni mannamóta og samræðu um bókmenntir og svo allt milli himins og jarðar. Menn bera saman bækur og bera saman bækur sínar, horft er yfir árið sem er að líða, spurt um hvernig tiltókst og hvert sé stefnt.
Þýðing vefsins fyrir málfrelsið
Það tók tíma fyrir almenning að öðlast aðgang að ritmiðlum og að hafa þar málfrelsi og geta tjáð sig án þess að óttast um öryggi sitt og líf sitt og sinna, og það er því miður enn svo víða í heiminum að fólk nýtur ekki tjáningarfrelsis. Vefurinn hefur gríðarlega þýðingu fyrir málfrelsi þjóða heims, auðvitað ekki án ábyrgðar, málfrelsi fylgir ábyrgð eins og gildir um frelsi almennt, því fylgir ábyrgð. Vefurinn er öflugasti samræðuvettvangur heimsins í dag sem nær yfir allar landfræðilegar takmarkanir og hann er vettvangur lýðræðislegrar umræðu. Frjáls umræða á vefnum styður framgang lýðræðis og mannréttinda víða um heim og veitir stjórnvöldum aðhald og leiðsögn til góðra verka og úthrópar illvirki og í sumum tilvikum tekst þannig að stöðva þau. Þessar hliðar á jákvæðum hliðum málfrelsis á vefnum höfum við séð á undanförnum misserum.
Synt í tónlist og hlustað á rokið
Haustið er skemmtilegt núna, hlýtt og kalt, haustlitir, logn og rok, Airwaves, tónlist, borgin víbrar, synti í gær í tónlist í Vesturbæjarlauginni, hljómsveit að spila, tengdu hljóðið í vatnið svo að maður hlustaði á tónlistina sem hljómsveitin var að flytja ef maður var með eyrun ofan í vatninu. Frábært að synda í tónlist, mæli með því. Ætla á umhverfisþing á morgun, vona að það verði ekki hífandi rok á heiðinni, leiðist að keyra í roki. Tíminn líður hratt, fullt að gera, fullt að gerast. Svo auðvitað fylgist maður með bókamessunni í Frankfurt úr fjarlægð. Gaman að vita af Íslandi sem heiðursgesti. Við eigum bara að njóta þess og vera stolt. Það er í lagi að vera stoltur svona í haustlitasinfóníunni.
Sendiherrar hverra og forseti hvaða sjónarmiða?
Hef verið hugsi yfir atburðum síðustu daga; er það á starfssviði sendiherra Íslands í Kína eða forseta Íslands að vera málpípa kínverskra fjárfesta, eða fjárfesta yfirleitt? Ætli forsetinn ætli þá að mæta á Grímsstaði á Fjöllum í kampavínsdrykkju þegar kaupin hafa verið gerð, líkt og í Danmörku með útrásarvíkingunum? Og eiga sendiherrar ekki að vera diplómatískir fulltrúar íslensku þjóðarinnar erlendis en ekki málsvarar einstakra peningamanna í viðskiptafléttum eða landakaupum?
Málin núna minna á margt í stöðunni gagnvart auðlindum og landi á Íslandi í byrjun 20. aldar, þ.e. hvað varðar aðkomu ráðamanna að áhuga fjárfesta í útlöndum á því að eignast jarðir, ár og vötn á Íslandi á þeim tíma. Þá gengdu ýmsir góðborgarar íslenskir, ráðamenn og fleiri, því hlutverki að tala fyrir og greiða götu útlendra fjármálamanna sem vildu kaupa hlut í íslenskri náttúru.
Eldhraun hverfur undir lúpínu ef …
Ég keyrði sandana um helgina, lúpínubreiðurnar þekja stórt svæði á sitthvora hönd á Sólheimasandi og Mýrdalssandi, eins og allir vita, en það sem verra er, fræin eru greinilega að flytjast með bíldekkjum á ný svæði. Það eru komnir lúpínublettir í Skaftáreldahrauni (Eldhrauni) meðfram þjóðveginum. Ef ekki verður brugðist við, hvað þá? Verður Eldhraun komið undir lúpínu eftir nokkra áratugi? Vilja menn það virkilega? Viljum við að grágræni mosinn og hraunmyndarnir sem eru svo sérstæðar hverfi undir lúpínuþekju? Ég skil ekki af hverju ekki er brugðist við og lúpínan hreinsuð burt á meðan hún er enn á svona litlum blettum þarna. Seinna verður það of seint.