Ég er fædd á Akureyri á sjöunda áratugnum og ólst upp í Eyjafirði en flutti til Reykjavíkur þegar ég var um tvítugt. Þar eru nú mína heimastöðvar, en mínar æskustöðvar fyrir norðan eiga sinn sess í hjarta mér og eru þáttur í því hver ég er í dag, ekki síður en borgin hér við sundin sem hefur geymt mig helminginn af ævi minni. Ég bý þar í borginni sem ég uni mér best, í grennd við Hólavallakirkjugarð, Tjörnina, kirkjur, sjóinn, höfnina, þjóðarbókhlöðuna, háskólann, háskólabíó og miðborgina, já og svo ekki sé minnst á Vesturbæjarlaug og Melabúð. Ég hef allt sem ég þarf hér í næsta nágrenni við heimili mitt og þannig á lífið í borg að vera. Ég er ekki úthverfabúi. Verð alltaf eirðarlaus í úthverfum. Vil alltaf sækja inn í miðjuna, að hjarta borgarinnar, sama í hvaða borg ég hef dvalið.
Borg er mitt heimili núna en þó er ég þar sem gestur. Hjarta mitt slær með náttúrunni og þar á ég raunverulega heima, nær henni en borgin býður upp á. Einn daginn læt ég hjartað leiða mig úr borginni þangað sem leiðir mínar eiga að liggja. Örlög fá að ráða.
Mynd. UBK
